ísraelska fjártæknifélagið Rapyd og Arion banki hafa gert samkomulag um kaup Rapyd á Valitor hf. Kaupverð er 100 milljónir bandaríkjadala, um 12,3 milljarðar íslenskra króna. Áætlað er að kaupin klárist í lok árs en gerður er fyrirvari um samþykki eftirlitsaðila. Kaupin eru sögð styrkja vöruframboð Rapyd í Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.
Áhrif viðskiptanna á fjárhag Arion banka verða jákvæð um rúmlega 3,5 milljarða eftir skatta, sem er munurinn á söluverði og bókfærðu virði félagsins að frádregnum sölukostnaði. Þá áætlar bankinn að umfram eigið fé hækki um 8 til 11 milljarða króna.
Kaupverð Rapyd á Valitor er um þrefalt hærra en það sem SaltPay borgaði fyrir 96% hlut í Borgun á síðasta ári en SaltPay borgaði um 4,3 milljarða fyrir Borgun.
Image from Viðskiptablaðið Linkedin.