ALÞJÓÐLEGU KORTASAMTÖKIN FELLA NIÐUR AUKASTAFI (AURA) Í KERFUM SÍNUM
Rapyd vill koma því á framfæri að í fyrramálið, þann 14.apríl, verða gerðar breytingar á meðhöndlun íslenskrar krónu í alþjóðlegum kerfum kortafyrirtækjanna Visa og American Express, og daginn eftir þann 15. april í kerfum Mastercard. Þessi kerfisbreyting er gerð að frumkvæði kortafyrirtækjanna til að lagfæra ósamræmi gagnvart ISO staðli um gjaldmiðla og getur haft áhrif á það hvernig upphæðir færslna birtast korthöfum.
Rapyd og alþjóðlegu kortafyrirtækin eiga ekki von á að upp komi vandkvæði í tengslum við þessa breytingu enda hefur undanfarið verið unnið að því að fyrirbyggja slíkt. Ef óvænt tilvik koma upp sem varða misræmi í upphæðum þá hvetjum við korthafa til að hafa samband við viðskiptabanka sinn og söluaðila að hafa samband við Rapyd til að fá það leiðrétt.
Subscribe Via Email
Thank You!
You’ve Been Subscribed.